Færslur: 2008 Ágúst
29.08.2008 11:14
Opið Laugardag 30 ágúst 11:00 - 18:00
Sælar skvísur!!
Við verðum með opið Laugardaginn 30 ágúst frá 11:00 - 18:00
Mikið úrval af ermum, einföldum og tvöföldum jersey, ullarermum og glamour ermum!
Eins eigum við von á að fá hettupeysurnar inn á Laugardag!
Þær koma í nokkrum litum: svörtu, hvítu, rauðu, og takmarkað magn í gráu og fjólubláu!
Peysurnar eru ekta fyrir veturinn, stór hetta og hár kragi, extra síðar ermar sem hægt er að draga fram fyrir puttana í kuldanum í vetur án þess þó að draga til í efninu. Síðar niður á mið læri svo þær eru ferlega smart bara í leggings við!
Góð og gerðarleg flík fyrir veturinn á aðeins 14500.-!!!
Sjáumst í búðinni skvísur!
Góða helgi***
22.08.2008 14:22
Glamour-ermar, geggjaðar á djammið!
Til hamingju Ísland, gullið framundan í handboltanum og allt verður crazy á menningarnótt!
Opið í dag til 19:00 og á Menningardag frá 13:00 - 20:00
Verið öll hjartanlega velkomin í heimsókn!
Það eru komnar nýjar ermar, ótrúlega klæðileg flík á allar konur hvernig sem er í laginu, endilega komið og mátið!
Glamour ermar geggjaðar á tjúttið!



Ullarermar æði hversdags á kaffihúsið, í vinnuna og í skólann, hlýjar og góðar í vetur!

Jersey ermar, ýmsir litir til og hægt er að velja litasamsetningar!
Fleiri myndir í albúmi undir "photoshoot 2"
Sjáumst í búðinni skutlur!
kveðja Katla H ***
15.08.2008 12:16
Skemmtilegt úrval af ermum!

Ferlega klæðilegar ermar sem henta vel við hvaða tækifæri; í skólann, í vinnuna á kaffihúsið eða á djammið!
Ég er bæði með einfaldar ermar sem koma enn betur út dregnar upp í vængi en þær tvöföldu, en þeim tvöföldu er algjörlega hægt að snúa við svo þær eru í raun tvær flíkur í einni..
Verðið á einföldu er 6500.-
og tvöföldu 9500.-
Ég á þokkalegt úrval í búðinni, en annars er hægt að velja sér hvaða liti maður vill og panta bara ;)
Endilega kíkið við á Skúlagötu 63 og mátið!
Kveðja Katla ***

08.08.2008 10:48
Ný sending af skarti!
5 verð á festum og armböndum: 550, 950, 1250, 1550 og 1950
Og lokkarnir eru á tilboði: 1 par á 950, 2 pör á 1800 og 3 á 2400.-
Um er að ræða bæði smellu lokka og fyrir göt.
ATH: fleiri myndir í albúmi





Endilega komið við og "blingið" ykkur upp fyrir helgina, Gay pride í fullum gangi og mikið líf í bænum!!
Kær kveðja frá Skúlagötu 63, 105 Reykjavík ;)
- 1
